Gítarleikarinn Les Paul látinn

Bandaríski gítarleikarinn Les Paul er látinn, 94 ára að aldri. Hann var einn af frumherjunum í þróun rafmagnsgítars og upptökutækni og hefur verið um hann sagt, að hann hafi gert rokk og ról mögulegt. 

Paul, sem hét réttu nafni Lester William Polfuss, lést í af völdum lungnabólgu í White Plains í New York. Hann var þegar í barnæsku mikill áhugamaður um rafmagnstæki og byrjaði einnig snemma að leika á gítar. Á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar lék hann undir hjá söngvurum á borð við Bing Crosby, Frank Sinatra og Andrews systrum og stofnaði einnig Les Paul Trio. 

Crosby gaf Paul segulbandstæki og í kjölfarið fékk hann mikinn áhuga á hljóðupptökum. Honum er m.a. þökkuð framþróun í upptökutækni, svo sem margrása upptökur og ýmis segulbandsbrögð. Þá byggja nútíma rafmagnsgítarar, sem ekki eru með hljómbotn, á hugmyndum hans og gítarinn Gibson Les Paul, heitir eftir honum.

Hljóðfæraframleiðandinn Gibson hóf framleiðslu Les Paul rafmagnsgítaranna árið 1952 og urðu þeir fljótt mjög vinsælir. Meðal þeirra sem leikið hafa á Gibson Les Paul eru Jimmy Page (Led Zeppelin), The Edge (U2), Eric Clapton, Dave Grohl (Foo Fighters), David Gilmour (Pink Floyd), John Foggerty (Creedence Clearwater Revival), James Hetfield (Metallica),  Mark Bolan (T-Rex) og Ace Frehley (Kiss).

Les Paul.
Les Paul.
1955 Gibson Les Paul
1955 Gibson Les Paul BENOIT TESSIER
Les Paul
Les Paul SAM MIRCOVICH
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg