Frank N. Furter færður vegna fádæma eftirspurnar

Frank N. Furter
Frank N. Furter mbl.is

Hin goðsagnakennda „miðnæturmynd“ The Rocky Horror Picture Show verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í kvöld.  Myndin verður sýnd af 35 mm filmu til að áhorfendur geti fengið réttu myndgæðin beint í æð.

Eftirspurn eftir miðum hefur verið mun meiri en skipuleggjendur RIFF bjuggust við, en upphaflega stóð til að sýna myndina í sal þrjú í Háskólabíó. Í ljósi hinnar miklu eftirspurnar hefur hins vegar verið ákveðið að færa hana í stóra salinn þar sem sýning hefst kl. 23 í kvöld.

Leikarar úr samnefndri uppsetningu Leikfélags Akureyrar mæta á svæðið áður en sýning myndarinnar hefst og munu þeir gera sitt til að koma fólki í réttu stemninguna.

Margt fleira spennandi verður á dagskrá RIFF í kvöld. Hinn bandaríski Jesse Hartman sem heimsfrumsýndi mynd sína, The House of Satisfaction, á RIFF lætur ekki þar við sitja heldur tekur einnig þátt í tónleikaröðinni Réttir sem stendur nú yfir og spilar þar eigin tónlist, meðal annars þá sem hljómaði í myndinni. Tónleikarnir verða í Batteríinu við Naustina, milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, og hefjast kl. 21.

Rocky úr The Rocky Horror Picture Show
Rocky úr The Rocky Horror Picture Show mbl.is
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes