Ólafur og Libia fulltrúar Íslands

Ólafur og Libia stækka

Ólafur og Libia Árni Sæberg

Ólafur Ólafsson og Libia Castro verða fulltrúar Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2011. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í hádeginu. Á síðasta ári var Ragnar Kjartansson fulltrúi Íslands.

Libia Castro fæddist í Madrid 1969 en Ólafur Ólafsson í Reykjavík 1973. Þau búa í Rotterdam og Berlín og er því óhætt að segja að þau séu listamenn margra landa, samkvæmt fréttatilkynningu. Þau kynntust í Hollandi árið 1997 og hafa starfað saman síðan.

„Strax í upphafi vöktu samstarfsverkefni þeirra athygli í Hollandi og á Íslandi og bráðlega víðar um heim og árið 2009 hlutu þau þriðju verðlaun hinna virtu hollensku myndlistarverðlauna Prix de Rome. Verk þeirra hafa myndað öfluga heild og þau hafa þróað með sér sína sérstöku hugmyndalegu nálgun þar sem leikur, ögrun og hugmyndaauðgi fara saman og byggir oft á yfirgripsmikilli rannsókn, hvert sem viðfangsefnið kann að vera hverju sinni," samkvæmt fréttatilkynningu.

PDF-skrá Fréttatilkynningin í heild
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

12 mættu á frumsýningu

Leikarinn Rade Serbedzija og Angelina Jolie
22:03 Einungis tólf manns mættu á frumsýningu á kvikmynd Angelinu Jolie, In the Land of Blood and Honey, í Belgrad í Serbíu í kvöld. Einhverjir gestanna gengu út áður en sýningu myndarinnar lauk. Meira »

Syngur ekki oftar fyrir Klum

Seal er úti í kuldanum hjá Heidi Klum.
20:56 Fyrirsætan lét klippa út tónlistaratriði Seals í keppninni Germany´s Next Topmodel.  Meira »

Adele að trúlofa sig?

Langar í stóran hring.
22:00 Adele langar í svo stóran trúlofunarhring að hægt sé að sjá hann úr geimnum.  Meira »

Brosti hringinn þegar hún fékk stjörnuna

Jennifer Aniston með frægðarstjörnuna.
18:00 Jennifer Aniston hefur eignast sína stjörnu á frægðarstéttinni í Hollywood.  Meira »

finnur.is