Skeggið fýkur í dag

Tómas Tómasson ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra
Tómas Tómasson ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra mbl.is/Golli

Veitingamennirnir Úlfar Eysteinsson og Tómas Tómasson munu mæta í kaffi í Seðlabankann fyrir hádegi en þeir ætla að fá staðfestingu á því að peningastefnunefnd bankans hafi lækkað stýrivexti í 9,5%. Í kjölfarið verða hnífarnir mundaðir og skeggið látið fjúka, segir Úlfar í samtali við mbl.is.

Þeir félagar hafa ekki skorið skegg sitt síðan um miðjan maímánuð í fyrra og hétu því að það yrði ekki gert fyrr en stýrivextir Seðlabanka Íslands yrðu komnir niður í eins stafs tölu. 

Úlfar segir daginn í dag mikinn gleðidag enda búinn að bíða lengi eftir því að stýrivextir á Íslandi nálgist það sem þeir eru í öðrum ríkjum.

Hann segir að það bærist blendnar tilfinningar með honum í dag: „Það er bæði söknuður og ánægja," segir Úlfar. „En oft veltir lítil þúfa stóru hlassi. Við erum búnir að koma stýrivöxtunum niður. Það segjum við að minnsta kosti," segir Úlfar glaður í bragði í samtali við mbl.is

Úlfar Eysteinsson veitingamaður verður ekki skeggjaður
Úlfar Eysteinsson veitingamaður verður ekki skeggjaður Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mundu að lesa smáa letrið í öllum þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til undirritunar. Einbeittu þér að eigin málum og láttu aðra eiga sig um hríð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Steindór Ívarsson
3
Lotta Luxenburg
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mundu að lesa smáa letrið í öllum þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til undirritunar. Einbeittu þér að eigin málum og láttu aðra eiga sig um hríð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Steindór Ívarsson
3
Lotta Luxenburg
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Sofie Sarenbrant