Tekjur af Avatar yfir 2 milljarðar dala

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Tekjur af kvikmyndinni Avatar fóru yfir tvo milljarða Bandaríkjadala, 256 milljarða króna, um helgina. Einungis nokkrir dagar eru síðan Avatar varð tekjuhæsta kvikmynd sögunnar en fyrra metið átti Titanic og var það sett árið 1998.

Á vef New York Times kemur fram að tekjurnar séu komnar í 2,039 milljarða dala en forsvarsmenn 20th Century Fox, sem er með dreifingarréttinn, vilja ekki spá til um hversu miklar tekjurnar koma til með að verða.

Þykir líklegt að James Cameron muni fá einhverjar tilnefningar fyrir Avatar á þriðjudag þegar Óskarsverðlaunatilnefningar verða kynntar.

Kathryn Bigelow slær í gegn

Það er hins vegar fyrrverandi eiginkona Cameron sem hefur átt sviðið um helgina þegar kemur að verðlaunum. Því kvikmynd hennar, stríðsmyndin The Hurt Locker, hefur heldur betur slegið í gegn hjá gagnrýnendum. Um helgina fékk hún leikstjóraverðlaunin á Directors Guild of America Awards og varð þar með fyrst kvenna til þess að hljóta þann heiður. Einungis í sex skipti á 62 árum hefur það gerst að sigurvegari DGA hljóti ekki Óskarsverðlaunin fyrir leikstjórn. 

Þrjár kvikmyndir fengu átta tilnefningar til Bafta-verðlaunanna, bresku kvikmyndaverðlaunanna, sem verða afhent í febrúar. Þetta eru myndirnar Avitar, The Hurt Locker og An Education.

Samtök bandarískra kvikmyndagagnrýnenda völdu The Hurt Locker sem bestu kvikmynd síðasta árs. Myndin fjallar um sprengjusérsveitarmenn sem starfa í Bagdad í Írak. 

The Hurt Locker var valin besta kvikmyndin á verðlaunahátíðinni Critics' Choice og Kathryn Bigelow var valin besti leikstjórinn.  Bigelow leikstýrði á sínum tíma myndinni K-19, The Widowmaker, sem Sigurjón Sighvatsson framleiddi og Ingvar E. Sigurðsson lék m.a. í. Þá leikur Jeremy Renner aðalhlutverkið í myndinni en Renner lék í myndinni Little Trip to Heaven, sem Baltasar Kormákur gerði fyrir nokkrum árum.


HO

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
Í gær, 23:56 Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flóraídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
Í gær, 22:40 Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

Björk aflýsti tónleikum

Björk flytur lög af plötunni Biophilia.
Í gær, 23:25 Björk Guðmundsdóttir aflýsti tónleikum, sem hún ætlaði að halda í New York Hall of Science í New York í kvöld. Fram kemur á vef blaðsins New York Times að tónleikunum hafi verið aflýst vegna veikinda. Meira »

Kvikmyndahátíðin í Berlín sett myndskeið

Naomi Watts leikur Díönu prinsessu
Í gær, 22:27 Þrátt fyrir snjó og kulda fór kvikmyndahátíðin í Berlín vel af stað í dag, en þetta er í 62. skiptið sem hún er haldin. Meðal þeirra sem voru viðstaddir opnunarmyndina, Farewell My Queen, var þýska leikkonan og fyrirsætan Diana Kruger. Hátíðin stendur til 19. febrúar. Meira »

finnur.is