Annar tvíburafíllinn sem fæddist fyrr í mánuðinum er veikur og hefur verið fluttur á dýraspítala. Móðir hans og bróðir eru með honum á spítalanum til þess að halda honum félagsskap. Talið er að taílensku bræðurnir Thong-Kum og Thong-Tang, séu fyrstu karlkyns tvíburafílarnir í heiminum.
Thong Kam hefur hins vegar pissað blóði í fjóra daga og hefur fílahirðirinn í dýragarðinum áhyggjur af unganum.
Sjaldgæft er að fílar beri tvíbura og enn sjaldgæfara er að þeir komist báðir á legg. Í Taílandi hafa þó fæðst aðrir tvíburafílar, þær Jim og Joom sem komu í heiminn árið 1993, en önnur þeirra drapst aðeins níu vetra gömul.
Í janúar árið 2005 bar fílskýr tveimur ungum sem voru þeir þriðju í sögu garðsins. Þá fæddust líka tvíburafílar í þjóðgarði í Nepal árið 2009 og voru þeir sömuleiðis þeir þriðju í sögu þess garðs.
Fílar eru í hávegum hafðir í Taílandi. Þeim hefur fækkað úr um 100 þúsund dýrum við upphaf 20. aldar í um 4.000 dýr nú.