Raxi heiðurslistarmaður Kópavogs

Ragnar Axelsson stækka

Ragnar Axelsson

Ragnar Axelsson ljósmyndari á Morgunblaðinu var í kvöld útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2010. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Ragnar, eða Raxi eins og hann er alltaf kallaður, hafi fyrir löngu fest sig í sessi sem einn fremsti fréttaljósmyndari Íslands.

„Tengsl mannsins við náttúruna séu honum einkar hugleikin og myndir hans sýni gjarnan sambandið milli manna og dýra í baráttu við náttúruöflin. Þá nái hann með svarthvítum myndum sínum að fanga andrúmsloft aðstæðna á einkar svipmikinn og persónulegan hátt," segir í tilkynningu.

Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista-og menningarráðs Kópavogs, tilkynnti um útnefninguna við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi en bærinn fagnar 55 ára afmæli sínu í dag. Sigurrós fór yfir feril Raxa og sagði meðal annars að hann hefði hvarvetna fengið mikið lof fyrir verk sín. Að því búnu afhenti Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, Raxa viðurkenninguna.

Raxi fæddist á Nýbýlaveginum í Kópavogi 6. mars 1958 og hefur búið í bænum í áratugi.

Hann lærði ljósmyndun hjá Ingibjörgu Kaldal, Mary Ellen Mark og Ólafi K. Magnússyni og hefur verið ljósmyndari á Morgunblaðinu frá árinu 1976.
Myndir eftir Raxa hafa verið birtar í fjölmörgum þekktum erlendum tímaritum, blöðum og ljósmyndabókum og hefur hann hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hann tekið þátt í á þriðja tug ljósmyndasýninga víða um heim og í ár prýðir ein mynda hans, af andliti í ísjaka, íslenska skálann á Expó-heimssýningunni í Sjanghæ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Auglýst eftir Leikskáldi Borgarleikhússins

Borgarleikhúsið hefur ráðið sex ung leikskáld og auglýsir nú eftir Leikskáldi Borgarleikhússins.
14:49 Fyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur í þriðja sinn eftir umsóknum um stöðu Leikskálds Borgarleikhússins. Meira »

Undirbýr mynd um sjálfan sig

Elton John.
13:11 Justin Timberlake fer með hlutverk Eltons Johns en leit stendur yfir að rétta leikstjóranum  Meira »

Viktoría fer heim af spítalanum

Daníel Westling og Viktoría krónprinsessa Svía.
13:17 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur í morgun en er nú komin heim til sín. Hér sést hún yfirgefa spítalann.   Meira »

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

finnur.is