Unnusti Viktoríu Svíaprinsessu, Daniel Westling, vill endilega eignast stóra fjölskyldu með prinsessunni en þau ganga í hjónaband í næsta mánuði. Svenska Dagbladet birtir ítarlegt viðtal við þau skötuhjú í dag.
Aðspurður um hversu marga prinsa og prinsessur hann vonist til þess að eignast þá segist Westling vonast til þess að þau verði nokkur börnin án þess að hægt sé að segja til um slíkt fyrirfram.
Westling, sem er 36 ára gamall, á og rekur líkamsræktarstöðvar. Hann og Viktoría, sem er 32 ára, ganga í hjónaband 19. júní.
Hann segir að það mikilvægasta í hans lífi sé að standa á bak við krónprinsessuna og styðja hana í starfi.
Sjá viðtalið hér