Ástarbréf Gibsons sönnunargögn

Mel Gibson stækka

Mel Gibson Reuters

Leikarinn Mel Gibson sendi fyrrverandi unnustu sinni, Oksana Grigorieva, ófá ástarbréf er þau voru par. Oksana hefur nú ákveðið að vera allt annað en rómantísk því hún áætlar að nota bréfin sem sönnunargögn í ofbeldismáli gegn Gibson til að sýna hversu „óskynsamur“ hann er.

 „Þetta er kapítalíska svínið þitt að lenda þotu sinni í Minnesota! Ég hef varla hugsað um neitt annað en þig síðan ég yfirgaf London! Það er yndislegt + sorglegt því þú ert ekki nálægt mér! Ég þarfnast litla Rússans míns til að fylla sál mína,“ ritaði Gibson í einu bréfinu til Grigorieva.

„Ef þú ert á fótum minn litli brúneygði kommúnisti hringdu þá í mig! Ég sakna þín + og guð minn góður ég elska þig.“ 

„Þú sigraðir skrímslið í mér með ást þinni frá þínu fallega hjarta + sál.“

Oksana Grigoreva og Mel Gibson.

Oksana Grigoreva og Mel Gibson. JUAN MEDINA

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Hvað á litla prinsessan að heita?

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun.
08:50 Svíar eru þegar farnir að velta fyrir sér nafni á nýfæddu prinsessuna, en í nótt fæddist Viktoríu krónprinsessu og Daníel eiginmanni hennar dóttir. Sænski veðbankinn Paf telur mestar líkur á að hún muni fá nafnið Alicia. Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

Svíaprinsessa er fædd

Hjónin Viktoría og Daniel.
06:23 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur um klukkan hálf fimm í morgun. Litla stúlkan, sem síðar meir mun sitja á valdastóli í Svíþjóð, fæddist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var 51 sentímetrar og tæp 3,3 kíló. Faðirinn, Daníel Westling, segir móður og barni heilsast vel. Meira »

finnur.is