Swift og Gyllenhaal hætt saman

Taylor Swift.
Taylor Swift. FRED PROUSER

Heimildir herma að stjörnuparið Taylor Swift og Jake Gyllenhaal hafi bundið enda á samband sitt. Parið hafði aðeins verið saman í örfáa mánuði en sagt er að sambandinu hafi lokið í lok desember.

Það fór lítið fyrir söngkonunni Swift og leikaranum Gyllenhaal og voru fjölmiðlar lengi að átta sig á því að eitthvað væri í gangi milli þeirra. Þó voru margir sem töldu að samband þeirra væri orðið alvarlegt eftir að hann kynnti hana fyrir systur sinni og gaf henni dýrar afmælisgjafir þegar hún varð 21 árs í desember.

Swift er þekkt fyrir að semja afar opinskáa texta við lög sín og hefur hún gert upp mörg ástarsambönd í slögurum sínum. Það verður því eflaust ekki langt þangað til hún syngur hugljúft lag um samband sitt og Gyllenhaals.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir