Mary og Friðrik eignuðust pilt og stúlku

Mary krónprinsessa og Friðrik krónprins eiga nú fjögur börn. Fyrir …
Mary krónprinsessa og Friðrik krónprins eiga nú fjögur börn. Fyrir áttu þau Ísabellu og Kristján. Reuters

Friðrik krónprins Dana og Mary krónprinsessa eignuðust í morgun tvíbura, pilt og stúlku. Friðrik greindi fjölmiðlum frá þessu kl. 11:30 að staðartíma í Danmörku (10:30 að íslenskum tíma). Heilsast móður og börnum vel.

Friðrik segir að börnin hafi fæðst með hálftíma millibili. Drengurinn hafi komið fyrstur í heiminn kl. 10:30 að staðartíma og stúlkan rétt fyrir kl. 11 á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn.

Pilturinn er 47 cm langur og vegur 2,7 kg og stúlkan er 46 cm og vegur 2,6 kg.

Friðrik vildi ekkert segja hvort þau hjónin væru búin að ákveða nöfn á börnin. En þar sem þau hafi komið í heiminn á afmælisdegi Elvis Presley megi kalla prinsinn „Elvis“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes