Knútur með heilaskemmdir

Kerti og myndir af Knúti hafa verið lögð við bjarndýragerðið í dýragarðinum í Berlín. stækka

Kerti og myndir af Knúti hafa verið lögð við bjarndýragerðið í dýragarðinum í Berlín.

Ísbjörninn Knútur, sem drapst skyndilega í dýragarðinum í Berlín um helgina, var með heilaskemmdir sem drógu hann væntanlega til dauða.

Í yfirlýsingu frá dýragarðinum segir, að bráðabirgðakrufning hafi leitt í ljós umtalsverða heilaskaða sem sennilega hafi valdið skyndilegum dauða dýrsins. Ekki sé að sjá að önnur líffæri hafi brugðist. 

Knútur fannst dauður í ísbjarnalauginni í dýragarðinum á laugardag. Hann hlaut heimsfrægð í byrjun ársins 2007 þegar fréttir bárust af því, að móðir hans hunsaði hann og að starfsmenn dýragarðsins hefðu tekið hann undir sinn verndarvæng og gæfu honum mjólk úr pela.

Húnninn vakti mikla athygli þegar hann var sýndur fyrst og fréttamenn víðsvegar að úr heiminum komu til Berlínar til að taka myndir af Knúti og fjalla um hann. Þá jókst aðsókn að dýragarðinum um allan helming.

En þegar Knútur óx úr grasi þótti hann sýna af sér óeðlilega hegðun og atferlisfræðingar veltu því fyrir sér hvort athyglin hefði stigið honum til höfuðs. Hann hljóp fram og aftur og ógnaði meðal annars fólki, sem vildi taka af honum myndir.   

Margir urðu harmi slegnir við fréttir af dauða Knúts og hafa blómvendir, myndir og kveðjur verið lagðar að ísbjarnagerðinu í dýragarðinum. Þá hafa yfir 4 þúsund manns skrifað nafn í minningabók sem opnuð var á netinu.  Einnig er hafin fjársöfnun fyrir minnismerki um björninn. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is