Sýndi óæðri endann

Sami Naceri, fullklæddur, í Cannes í gær.
Sami Naceri, fullklæddur, í Cannes í gær. Reuters

Lögregla í Cannes í Frakklandi handtók í gærkvöldi franska leikarann Sami Naceri fyrir ósiðlega framkomu á almannafæri. Þegar ljósmyndarar báðu um að fá að taka af honum mynd á kvikmyndahátíðinni í bænum brást hann við með því að snúa sér við og leysa niður um sig.

Naceri, sem er 49 ára og leikur í sjónvarpsþáttunum Taxi, er „sakaður um að sýna persónulegan líkamshluta" að sögn lögreglumanns sem vildi ekki láta nafns síns getið.

Naceri hefur nokkrum sinnum komist í kast við lögin og árið 2009 var hann m.a. dæmdur fyrir líkamsárás þar sem hnífum var beitt. Þá var hann handtekinn í Cannes í síðustu viku fyrir að móðga lögreglumann. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg