Besta útihátíðin er að bresta á, en hún verður haldin næstu helgi. Hljómsveitin Quarashi mun koma saman á hátíðinni, en hljómsveitin hætti árið 2005. Mikil spenna ríkir fyrir endurkomu sveitarinnar og Sölvi Blöndal lofar engu minna en „Hell of a Show“.