,,Tónlistarlíf mitt hefði ekki verið eins án Íslands“

„Ég finn mikið fyrir Íslendingnum í mér,“ sagði Erling Blöndal Bengtsson við athöfnina í gær. stækka

„Ég finn mikið fyrir Íslendingnum í mér,“ sagði Erling Blöndal Bengtsson við athöfnina í gær. mbl.is/Kristinn

Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari afhenti Tónlistarsafni Íslands til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn. Afhendingin fór fram við formlega athöfn í Tónlistarsafni Íslands í gær.

Í ræðu sem Erling hélt við athöfnina sagði hann að hann hefði alist upp á miklu tónlistarheimili.

,,Faðir minn var fiðluleikari og gaf mér fiðlu þegar ég var þriggja ára. En þegar ég ætlaði að spila á fiðluna vildi ég alltaf hafa hana milli fóta mér eins og selló. Því ákváðu foreldrar mínir að láta smíða fyrir mig selló,“ sagði Erling. Þetta sama selló afhenti hann Tónlistarsafni Íslands í gær.

Danskur fiðlusmiður, Hans Dahl að nafni, smíðaði sellóið í Kaupmannahöfn og lék Erling fyrst á það á tónleikum árið 1936 þá fjögurra ára gamall. Sellóið ásamt myndum og öðrum munum sem Erling hefur ákveðið að afhenda safninu verður almenningi til sýnis frá og með mánudeginum 3. október.

Í umfjöllun um gjöfina og afhendingu hennar í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að allt frá fyrstu árum sínum sem sellóleikari hefur Erling heimsótt Ísland og haldið hér tónleika. Erling er af íslenskum ættum en móðir hans Sigríður Nielsen var ættuð frá Ísafirði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

finnur.is