Myndlistarmaðurinn Katrín Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á tvíæringnum í Feneyjum vorið 2013.
Katrín sýndi meðal annars á Metropolitan-safninu í New York tvær skúlptúrinnsetningar haustið 2010. Er hún fyrst Íslendinga til að vera með einkasýningu í Metropolitan, einu stærsta og virtasta listasafni heims. Katrín hefur um árabil starfað að list sinni samtímis hér heima og í New York.
Katrín fékk starfslaun til tveggja ára nýverið frá launasjóði myndlistarmanna.