Áhugi Cluless-leikkonunnar Alicia Silverstone á umhverfismálum og grænum lifnaðarháttum er vel þekktur. Það nýjasta er að leikkonan mælir með umhverfisvænu hjálpartæki ástarlífsins.
Silverstone hefur löngum verið þekkt fyrir að leggja áherslu að lifa í sátt og samlyndi við náttúruna, dýr og menn. Langt er síðan hún tileinkaði sér m.a. vegan-mataræði auk þess sem snyrtivörulína á hennar vegum inniheldur engin aukaefni eða þau sem ekki eru umhverfisvæn o.s.frv.
Leikkonan hefur verið iðin við að gefa góð ráð og mæla með vissum vörum bæði á vefsíðu sinni og síðunni OpenSky.com. Tísti hún um daginn meðmæli með Leaf-víbradornum sem hún mælti með við allar dömur. Á þetta hjálpartæki ástarlífsins að vera til hinna ýmsu hluta nytsamlegt auk þess sem það kemur í ýmsum formum og er umhverfisvænt.
Hægt er að lesa meðmæli leikkonunnar hér.