Sögð íhuga að gifta sig aftur

Andrés, prins af York, og Sara Ferguson.
Andrés, prins af York, og Sara Ferguson.

Breska blaðið Telegraph segir að Andrés, prins af York, og Sara Ferguson séu að velta fyrir sér að gifta sig aftur, en þau skildu árið 1996.

Í fréttinni kemur fram að Andrés og Sara hafi búið saman síðustu ár í Winsor. Haft er eftir vinum þeirra að annað hjónaband þeirra sé „bara spurning um tíma“.

Andrés og Sara hafa alltaf haldið góðu sambandi frá því að þau skildu. Þau eiga tvær dætur, Beatrice og Eugenie, sem þau hafa staðið saman um að ala upp. Þau hafa t.d. yfirleitt alltaf farið öll fjögur saman í sumarfrí.

Telegraph segir að eitt af því sem bendi til þess að brúðkaup kunni að vera í uppsiglingu er að Sara Ferguson sást nýverið í Balmoral-kastala, sem er aðsetur drottningar í Skotlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson