Kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sem er 45 ára, og unnusta hans, fyrirsætan Jacqui Ainsley, eiga von á sínu þriðja barni, en fyrirsætan, sem er 32 ára gömul, sýndi óléttukúluna í Lundúnum í síðustu viku.
Fyrir eiga þau soninn Rafael, sem er tveggja ára, og dótturina Rivku, eins árs. Samkvæmt heimildum The Sun á Ainsley von á sér í júní.
Elsta barn þeirra var getið aðeins níu mánuðum eftir að Ainsley og Ritchie byrjuðu saman, en þau hittust í gegnum sameiginlegan vin í gleðskap, og ári síðar byrjuðu þau saman.
Guy Ritchie var giftur söngkonunni Madonnu í átta ár og eiga þau saman soninn Rocco, sem er 13 ára, auk þess sem þau ættleiddu soninn David Ritchie, sem er átta ára.