Aðdáendur sjónvarpsþáttaraðarinnar Game of Thrones bíða eflaust flestir með öndina í hálsinum af eftirvæntingu enda ekki nema vika þar til fyrsti þátturinn í þáttaröð 4 verður frumsýndur vestra. Framleiðendur þáttanna gera hvað þeir geta til að kynda upp í aðdáendum og sendu á dögunum frá sér fjórar stiklur.
Í einni þeirra, hér að neðan, má sjá leikara Game of Thrones æfa sig í vopnaburði og -skaki í íslenskri náttúru, en eins og flestir vita eru þættirnir að stórum hluta teknir upp hér á landi. Þá hrósa þeir hrjóstugu landslaginu sem henti vel bardagasenunum.