Leikkonan Natalie Dormer, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í Game Of Thrones-þáttunum, fór úr fötunum fyrir nýjasta tölublað GQ.
Í viðtali við tímaritið útskýrði Dormer, sem er að fara að leika Cressidu í næstu Hunger Games-myndinni, Mockinjay, af hverju hún hefði ákveðið að raka af sér hárið.
„Ég elska að stíga út fyrir þægindarammann – ég lifi fyrir það. Sum ár eru rólegri en önnur – þú hoppar ekki út úr flugvél á hverjum degi,“ sagði Dormer.
Leikkonan sagði einnig að útlitsbreytingin hefði haft það í för með sér að hún væri meira töff.
Dormer talaði einnig um það hversu spennt hún væri fyrir nýju myndinni Hunger Games: Mockinjay.
„Það er ekki hægt að vera partur af betri fjölskyldu. Ég er svo ánægð með að vera hluti af Hunger Games-fjölskyldunni,“ sagði Dormer.