Í leynilegum gögnum frá kvikmyndaframleiðandanum Sony sem láku út er leikkonan Penelope Cruz orðuð við hlutverk Bond-stúlkunnar í næstu James Bond-mynd.
Samkvæmt heimildum Heat eru framleiðendur James Bond að vinna að næstu kvikmynd á eftir Skyfall, en eiginmaður Cruz, Javier Bardem lék illmenni í þeirri mynd.
„Framleiðendur Bond hafa verið að eltast við hana síðan Daniel Craig varð James Bond árið 2006. Dagskrá hennar og barnsburður hefur gert það að verkum að það hefur ekki orðið að veruleika,“ sagði heimildarmaður The Sun og bætti við: „Á þessu stigi málsins vill enginn hjá Sony staðfesta orðróminn.“
Fyrirhugað er að hefja tökur á kvikmyndinni í nóvember á þessu ári, en stefnt er að því að frumsýna myndina í október árið 2015.