Katrín hertogaynja ekki ólétt

Katrín hertogaynja og Vilhjálmur Bretaprins gæða sér á vínglasi.
Katrín hertogaynja og Vilhjálmur Bretaprins gæða sér á vínglasi. mbl.is/AFP

Vilhjálmur Bretaprins gaf einhverjar vísbendingar um að eiginkona hans Katrín hertogaynja af Cambridge ætti von á öðru barni á dögunum. Orðrómurinn mun hins vegar ekki vera réttur þar sem Katrín hertogaynja saup af vínglasi eftir að sögusagnirnar fóru á kreik. 

Orðrómurinn fór af stað þegar Vilhjálmur Bretaprins tók á móti sjali sem var gjöf ætluð átta mánaða gömlum syni þeirra og sagði hann er hann tók við gjöfinni: „Þú gætir þurft að prjóna annað sjal fljótlega.“

En miðað við hegðun Katrínar hertogaynju er ólíklegt að Georg Bretaprins sé að fara eignast systur eða bróður á næstunni, samkvæmt heimildum Heat. 

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja hafa notið sín í opinberri heimsókn á Nýja-Sjálandi og fóru þau meðal annars á vínekru þar sem Katrín hertogaynja fékk sér vínglas.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson