Lindsay Lohan segist dauðsjá eftir því að hafa skrifað lista yfir þá karlmenn sem hún hefur sofið hjá. Listinn birtist í tímaritinu inTouch Weekly. Á listanum má finna nöfn m.a. Justin Timberlake, Adam Levine, Joaquin Phoenix og Colin Farrell.
Segir Lohan að upphaflega átti listinn aldrei að birtast í fjölmiðlum. Sú slúðursaga hefur flogið að Lohan hafi skrifað listann niður á meðan hún var að skemmta sér með vinkonum sínum í miðborg Los Angeles. Lohan segir sannleikan hins vegar vera þann að hún skrifaði listann sem hluta af meðferð við fíkniefnanotkun, sem hún var í á sínum tíma. „Einhver hlýtur að hafa komist yfir listann þar og tekið mynd af honum,“ segir Lohan.