Leikkonurnar Kristen Bell og Jenna Dewan-Tatum virðast ekki vera spéhræddar, en þær eru báðar allsberar í nýjasta tölublaði Allure.
Á síðasta ári fóru Jennifer Morrison, Naya Rivera, Clare Bowen og Christa Miller úr fötunum fyrir tímaritið og nú er komið að Bell, Dewan-Tatum, Niu Long og Minnie Driver.
Bell og Dewan-Tatum eru nýbakaðar mæður en þær eignuðust báðar dætur á síðasta ári.
Samkvæmt heimildum Huffington Post er minna en ár síðan Dewan, sem er 33 ára gömul, átti Everlyn Tatum með eiginmanni sínum leikaranum Channing Tatum í maí á síðasta ári, en hann studdi hana heilshugar í því að sitja fyrir nakin.
„Tatum var alveg til í þetta – hann veit að mér líður vel í eigin skinni,“ sagði leikkonan í Allure.