Þjónninn of sætur, baðkarið of stórt

Jafnvel á paradísarhótelum er hægt að finna eitthvað til að …
Jafnvel á paradísarhótelum er hægt að finna eitthvað til að kvarta yfir, eins og t.d. litnum á hafinu. AFP

Of myndarlegur þjónn, of stórt baðkar og of hvít rúmföt eru meðal þeirra furðulegu umkvartana sem hótelstarfsmenn um allan heim hafa fengið, samkvæmt nýrri könnun. Kröfurnar sem sumir hótelgestir gera eru ekki síður furðulegar.

Leitarvélin Skyscanner lagði spurningakönnun fyrir 400 starfsmenn á hótelum um allan heim, þar sem þeir voru beðnir um að nefna dæmi um 10 undarlegustu umkvartanir og kröfur sem þeim hefur borist frá viðskiptavinum.

Skyscanner tók saman eftirfarandi topp 10 lista útfrá svörunum sem bárust:

Furðulegustu kvartanirnar:

  1. Rúmfötin voru of hvít
  2. Hafið var of blátt
  3. Ísinn var of kaldur
  4. Baðkarið var of stórt
  5. Hrotur í kærustunni héldu vöku fyrir einum hótelgesti
  6. Hundur annars hótelgests naut sín ekki.
  7. Ekkert útsýni til sjávar (úr hótelglugga í Mayfair í London)
  8. Það var engin steik á grænmetismatseðlinum.
  9. Þjónninn var of myndarlegur.
  10. Móðir brúðgumans fékk ekki rúm í hjónabandssvítunni.

Furðulegustu beiðnirnar:

  1. Eitt glas af vatni á klukkustundar fresti alla nóttina.
  2. 15 gúrkur á dag.
  3. Að klósettið yrði fyllt af sódavatni.
  4. Hunangsbað.
  5. Geitabjöllur til að sofna út frá.
  6. Kjúklingaleggir, en aðeins hægri leggirnir.
  7. Dauð mús.
  8. Baðkar fullt af súkkulaðimjólk.
  9. 16 koddar (fyrir einn gest)
  10. Krókódílasúpa.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg