Hefur loksins sótt um skilnað

Söng- og leikkonan Katharine McPhee.
Söng- og leikkonan Katharine McPhee. mbl.is/AFP

Söngkonan Katharine McPhee hefur loksins sótt um skilnað frá fyrrverandi eignmanni sínum, Nick Cokas. Hún hefur loks látið verða af þessu, en sjö mánuðir eru síðan leikkonan sást kyssa fyrrverandi Smash-leikstjórann Michael Morris.

„Eftir sex ára hjónaband, og eftir að hafa verið skilin í um ár, hefur Katharine McPhee sótt um formlegan skilnað frá Nick Cokas,“ sagði fjölmiðlafulltrúi, samkvæmt heimildum People og bætti við: „Þau eru í góðu sambandi og munu halda áfram að vera vinir. Þau biðja fólk að sýna þeim tillitssemi á þessum tímamótum.“

American Idol-söngkonan McPhee var þegar hætt með Cokas er hún sást kyssa Michael Morris, sem er giftur leikkonunni Mary McCormack, en það gerðist í október á síðasta ári.

Morris og McCormack, sem eiga þrjár ungar dætur saman, hafa síðan þetta gerðist náð aftur saman og eru gift.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes