Twilight-stjarnan Robert Pattinson hefur verið orðaður við hlutverk Indiana Jones, en framleiðendur Disney hafa beðið umboðsmenn sína að skrifa niður nöfn tíu leikara sem kæmu til greina í hlutverkið.
Samkvæmt heimildum Heat er fyrirhugað að framleiða tvær Indiana Jones-myndir á þremur árum svo að sá leikari sem tekur við hlutverkinu þarf að skuldbinda sig í þrjú ár.
Fyrir utan Pattinson hafa leikararnir Kellan Lutz, Chris Hemsworth, Chris Pine og Channing Tatum einnig verið orðaðir við hlutverkið.
Talið er að tökur hefjist ekki fyrr en árið 2016.