Helen Mirren segist fegin því að hafa kynnst manni sínum eftir fertugt, að því er O Magazine greinir frá.
Hin 68 ára gamla leikkona telur sig og eiginmann sinn, Taylor Hackford, ekki hafa passað saman ef þau hefðu kynnst þegar þau voru yngri. Í viðtali við Opruh í O Magazine segist leikkonan hafa áður sagt við eiginmann sinn að hún hefði óskað þess að hafa hitt hann fyrr í lífinu en hann segi að þau væru ekki saman í dag ef þau hefðu kynnst fyrr.
Helen Mirren tekur í dag undir orð mannsins síns og segir þau bæði hafa verið upptekin við starfsferil sinn og að þau hefðu þurft þann tíma fyrir sjálfan sig til að vinna í sínum málum.