Kim Kardashian segir að litli frændi sinn Mason hafi verið brjálaður yfir því að afmælisveisla Nort West, sonar Kim Kardashian og Kanye West, hafi verið haldin á heimili Mason, að því er vefsíða People greinir frá.
Eins árs afmælisveisla North West var haldin á heimili Kourtney Kardashian og eiginmanni hennar Scott Disick um miðjan júní og var þema afmælisveislunnar kallað Kidchella en Mason er fjögurra ára gamall sonur Kourtney Kardashian.
Þá hafði Mason hótað að hræða fólk og setja legókubba út um allt þegar gestirnir kæmu í afmælisveisluna.
Systurnar Kim Kardashian og Khloé Kardashian telja Mason líkjast móður sinni, Kourtney Kardashian, varðandi frekjuskap.
Kourtney Kardashian og Scott Disick eiga von á sínu þriðja barni seinna á árinu.