Fyrirsætan Janice Dickinson hefur beðið Tyru Banks afsökunar en hún lét ljót orð falla um hana eftir að hafa verið rekin úr America's Next Top Model-þáttunum, að því er Us Weekly greinir frá.
Janice Dickinson sagði þáttinn spilltan og kallaði Tyru Banks sálarlausa ásamt fleiri ásökunum. Hún baðst afsökunar á því sem hún sagði og viðurkennir að hún hafi verið sár eftir að hún var rekin úr þáttunum.
Ástæðu afsökunarbeiðninnar segir Janice Dickinson þá að hún og unnusti hennar Robert Gerner ætli að gifta sig og hún vilji hefja nýtt líf með hreina samvisku.