Khloé Kardashian hefur viðurkennt að fyrrverandi eiginmaður hennar, Lamar Odom, hafi haldið framhjá henni á sínum tíma.
Raunveruleikastjarnan viðurkenndi þetta í Keeping Up with the Kardashians-raunveruleikaþáttunum, en hún sótti um skilnað í desember á síðasta ári eftir að upp komst um framhjáhaldið.
Khloé Kardashian og Lamar Odom höfðu verið gift í fjögur ár. Hún er nú í sambandi með rapparanum French Montana en viðurkenndi í þáttunum að hafa logið að fjölskyldu sinni um tíma um hegðun Lamar Odom.