Óhugsandi að hittast

Friends leikararnir á sínum tíma.
Friends leikararnir á sínum tíma. Ljósmynd/Wikipedia

Matt LeBlanc hlakkar til að hitta unnusta Courteney Cox, að því er E! News greinir frá.

Hinn 46 ára gamli leikari hefur ekki enn hitt unnusta Cox, Johnny McDaid, þó að hann haldi góðu sambandi við leikkonuna en Cox trúlofaðist hljómsveitarmeðlim Snow Patrol, McDaid, í síðasta mánuði.

Leikkonan sást snæða kvöldverð ásamt fyrrverandi meðleikurum sínum úr Friends-þáttunum, þeim Jennifer Aniston og Lisu Kudrow, í vikunni í Los Angeles. Upp frá því spratt upp orðrómur um hvort Friends-gengið hygði á endurfundi bráðlega en Matt LeBlanc neitaði því.

Hann sagði þær Cox, Kudrow og Aniston hafa hringt í sig í gegnum myndsímtal af veitingastaðnum en neitaði að þau væru með það á næstu dagskrá að hittast öll.

Courteney Cox sagði nær óhugsandi að þau gætu hist öll þar sem þau væru öll mjög upptekin og byggju ekki á sama stað. Þá sagði hún að þar sem þau væru svo mörg og svo dreifð væri erfitt að fá alla saman í matarboð. Hún viðurkennir að hafa reynt að halda boð í tíu ár með öllum leikurunum en ekki hafi tekist að fá alla til að mæta á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes