Clooney opnar sig

George Clooney.
George Clooney. mbl.is/AFP

George Clooney ræddi við tímaritið Variety um afsökunarbeiðni sem hann fékk frá Daily Mail fyrir stuttu en veftímaritið skrifaði grein þess efnis að tengdamóðir hans væri á móti brúðkaupi hans og Alamuddin.

Þá vildi Daily Mail halda því fram að tengdamóðirin væri andstæð brúðkaupinu vegna mismunandi trúarskoðana.

Stuttu eftir að fréttin birtist svaraði George Clooney henni, sem hann segist ekki gera oft, og sagði þetta algera þvælu.

Honum þótti Daily Mail ganga of langt og jafnvel stofna fjölskyldu hans og unnustu hans, Amal Alamuddin, í hættu og gaf þess vegna út tilkynningu þess efnis að fréttin væri röng og að Daily Mail ætti að skammast sín.

Í viðtali við Variety útskýrir George Clooney betur hvernig hann tók fréttinni og segir að hann lendi mjög oft í því að slúðurblöð búi til ósannar fréttir um sig. Hann segist hlæja að flestum þess konar fréttum en hafi ekki getað setið hjá vegna þessarar fréttar. Það sem hafi angrað hann var að honum þykir Daily Mail vera orðið þess konar fréttamiðill sem er áhrifavaldur á aðra bandaríska fjölmiðla sem séu áreiðanlegri.

George Clooney er sonur virts fréttamanns sem vann samviskusamlega alla sína ævi og með siðfræðina að leiðarljósi, að því er leikarinn segir í viðtalinu, og ber hann því mikla virðingu fyrir blaðamennsku og fjölmiðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes