Unnusta Charlie Sheen vill stórt brúðkaup, að því er vefsíða RadarOnline greinir frá.
Brett Rossi reynir að sannfæra unnusta sinn, leikarann Charlie Sheen, um að halda stórt brúðkaup en þau ætla að gifta sig í haust á þessu ári.
Heimildir herma að leikarinn sé hins vegar þreyttur á hversu kröfuhörð unnustan sé orðin undanfarið. Talsverður aldursmunur er á parinu en Brett Rossi er 24 ára en Charlie Sheen 48 ára.
Giftingin mun verða í fjórða skipti sem leikarinn gengur í það heilaga en Brett Rossi hefur einu sinni áður verið gift.
Fyrrverandi eiginkonu Charlie Shee, Brooke Mueller, verður boðið í brúðkaupið en saman eiga þau fimm ára tvíburastráka, þá Max og Bob, en Brett Rossi og Charlie Sheen vilja að þeir gegni einhverju hlutverki í brúðkaupsathöfninni.
Charlie Sheen bað Brett Rossi þegar þau voru í fríi á Hawaí í febrúar á þessu ári en brúðkaupið var sett á bið þar sem Brett Rossi þurfti að skilja við fyrri eiginmann sinn, Jonathan Ross.