Móðir Kardashian-raunveruleikastjarnanna, Kris Jenner, segist gráta sig í svefn á hverju kvöldi, að því er vefsíða Hollywood Life greinir frá.
Í raunveruleikaþættinum Keeping Up With the Kardashians brotnaði Jenner niður þegar fjölskyldan var í fríi á Taílandi.
Hún segist hafa verið svo áhyggjufull yfir börnum sínum, Khloé og Rob Kardashian, en Khloé stendur í skilnaði þessa dagana við fyrrverandi eiginmann sinn, Lamar Odom, og Rob stríðir við ofþyngd og hefur haldið sig frá fjölskyldunni undanfarið.
Í fríinu ákváðu yngri dætur Kris, Kendall og Kylie, einnig að yfirgefa fjölskylduna og eyða einum degi einar í Taílandi án þess að láta fjölskylduna vita. Þannig taldi fjölskyldan þær hafa stungið af.
Khloé vildi fara fyrr heim úr fríinu og reyndi að breyta flugmiðanum sínum vegna þess að fjölskyldufríið var of dramatískt.