Ætlar að haldast edrú

Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin. mbl.is/AFP

Scott Disick mun ekki fá sér drykk þangað til þriðja barn hans fæðist, að því er tímaritið Us greinir frá.

Eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian, Scott Disick, segist ekki munu fá sér áfengi fyrr eftir að Kardashian er búin að eiga en hún er ólétt að þriðja barni þeirra.

Disick er staðráðinn í að halda sér edrú eftir að hann var lagður inn á spítala vegna áfengiseitrunar 22. júní síðastliðinn eftir mikla drykkju í New York-borg.

Hins vegar er orðrómur uppi um að Disick hafi fengið sér áfengi í afmælisveislu Jennifer Lopez sem hún hélt í tilefni af 45 ára afmæli sínu hinn 24. júlí síðastliðinn. Í veislunni sást Disick halda á tómu vínglasi. 

Þessi mikla áfengisneysla Disicks er talin vera vegna þess að hann missti nýverið báða foreldra sína og hefur átt erfitt síðan.

Kardashian hefur hins vegar varað hann við að hann sé á síðasta séns hjá henni og að hún muni ekki taka þessum drykkjuskap miklu lengur.

Scott Disick og Kourtney Kardashian byrjuðu saman árið 2007 en hættu saman í byrjun árs 2010 eftir að Kardashian komst að því að hann ætti við áfengisvanda að stríða. Eftir það fór Disick í áfengismeðferð og þau byrjuðu aftur saman um mitt ár árið 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes