Trúir ekki á einkvæni

Ethan Hawke.
Ethan Hawke. mbl.is/AFP

Ethan Hawke segir sig og eiginkonu sína eiga gott vinasamband sín á milli, að því er tímaritið Beach greinir frá.

Hinn 43 ára gamli leikari sagði nýlega að hann trúi ekki á einkvæni en segir að hann eigi frábært samband við eiginkonu sína, Ryan Hawke, til sex ára.

Við það bætir hann við að allt í lífi hans virki ef samband hans virki vel með eiginkonunni.  

Hins vegar sé hann ekki viss um framtíð þeirra hjóna og endurtekur það sem hann áður sagði, að fólk hafi of barnalega sýn á einkvæni og segir að okkar tegund sé ekki gerð fyrir einkvæni.

Ethan Hawke segir að þegar fólk verði sárt þegar makinn haldi framhjá sé í rauninni svipað og að verða sár yfir því að fá grá hár, og vísar þar í skoðun sína að einkvæni sé manninum óeðlilegt. Hann segir manneskjur vera kynlífsverur og geti ekki haldið sig við einn maka út ævina.

Ethan Hawke á dæturnar Clementine og Indiana með Ryan Hawke en þær eru sex og þriggja ára. Með fyrrverandi eiginkonu sinni, Uma Thurman, á hann dótturina Maya og soninn Levon en þau eru 16 og 12 ára.

Í viðtali við tímaritið Beach sagði hann föðurhlutverkið vera yndislegt og náttúrulegt en það sé hins vegar restin af lífinu sem sé svo erfið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes