Elisabeth Moss átti erfitt með síðustu tökur sínar í Mad Men sjónvarpsþáttunum, að því er dagblaðið New York Daily News greinir frá.
Leikkonan sagðist hafa vitað það í dágóðan tíma að sjónvarpsþáttaröðin væri að taka enda en viðurkennir að síðustu tökurnar hafi verið erfiðar.
Mad Men sjónvarpsþættirnir hafa staðið yfir í sjö þáttaraðir en Elisabeth Moss, sem leikur Peggy Olson í sjónvarpsþáttunum, segir að leikarar sjónvarpsþáttanna hafi allir verið miður sín þegar síðustu tökum lauk.
Getgátur hafa verið uppi um að Elisabeth Moss hafi fengið hlutverk í sjónvarpsþáttunum True Detective sem eru á vegum HBO sjónvarpsstöðvarinnar en leikkonan tekur ekki undir þær getgátur.