Viðurkennir loks óléttuna

Zoe Saldana.
Zoe Saldana. mbl.is/AFP

Zoe Saldana viðurkennir loks að hún sé ólétt eftir að getgátur hafa verið uppi um óléttuna í einhvern tíma.

Að því er Huffington Post greinir frá var Zoe Saldana mönuð til að taka þátt í ísfötu áskoruninni, eða ALS Ice Bucket Challenge, sem gengur nú um netheima á meðal stjarnanna.

Leikkonan birti myndband af sér þar sem hún tekur áskoruninni en segist ekki sjálf geta lokið henni og fékk eiginmann sinn, Marco Perego, til að klára áskorunina fyrir sig.

Í myndbandi af atvikinu, þar sem Marco Perego fær yfir sig fötu fulla af ísköldu vatni, segist leikkonan ekki hafa getað tekið áskoruninni sjálf og strýkur magann. Með því gaf hún til kynna að hún ætti von á barni.

Eftir að eiginmaður Zoe Saldana kláraði áskorunina skoraði hún meðal annars á James Cameron og Salma Hayek.

Áskorunin hefur þann tilgang að safna fé fyrir rannsóknum á taugasjúkdómi sem kallast ALS, eða á íslensku hliðarstrengjahersli, en sjúkdómurinn er sjaldgæfur og ólæknandi sjúkdómur sem herjar á miðtaugakerfið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes