Meg Ryan og John Mellencamp eru hætt saman eftir þriggja ára samband, að því er tímaritið UK's Closer Weekly greinir frá.
Meg Ryan var áður gift Dennis Quaid og var í sambandi með Russel Crowe áður fyrr en talið er að hún hafi slitið sambandinu við John Mellencamp í leyni.
John Mellencamp er söngvari hljómsveitarinnar Pink Houses en hann er 62 ára. Meg Ryan er 52 ára en sambandsslitin eru talin vera vegna fjarlægðarinnar þeirra á milli en Meg Ryan býr í New York en John Mellencamp í Bloomington í Indianafylki.
Einnig er talið að söngvaranum hafi þótt óþægilega mikil athygli fylgja því að vera í sambandi með svona frægri leikkonu eins og Meg Ryan.
Meg Ryan á einn son, hinn 22 ára Jack, með fyrrverandi eiginmanni sínum Dennis Quaid, og eina ættleidda dóttur, Daisy, en hún er níu ára.