Sjónvarpsstjörnurnar Sammi Sweetheart Giancola og Ronnie Ortiz-Magro úr sjónvarpsþáttunum Jersey Shore sem sýndir voru á MTV á árunum 2009-2012 eru ekki lengur saman að sögn fréttamiðilsins E! News.
Þau höfðu verið saman í fimm ár áður en þau ákváðu að binda enda á samband sitt. Þau kynntust fyrst þegar þau léku saman í fyrstu þáttaröð þáttanna.
„Ég og Ronnie höfum ákveðið að segja þetta gott og fara í sitt hvora áttina. Ég óska honum alls hins besta, en nú ætla ég að einbeita mér að sjálfri mér,“ segir Sammi í samtali við E!
Þættirnir voru afar umdeildir á sínum tíma, enda byggðu þeir að miklu leyti á áfengisneyslu, skemmtanalífi og nekt. Það breytti því þó ekki að þættirnir eru mest séðu þættir MTV frá upphafi.