Stofnar fyrirtæki

Jessica Alba.
Jessica Alba. mbl.is/AFP

Jessica Alba segir að áður fyrr hafi hún alltaf einbeitt sér fyrst og fremst að kvikmyndaferli sínum en segir að nú finni hún ekki fyrir álaginu um að leika í mörgum kvikmyndum líkt og áður fyrr.

Í viðtali við tímaritið Grazia segir leikkonan að eftir að hún eignaðist dætur sínar, Honor sem er sex ára og Haven sem er tveggja ára, hafi hún ekki lengur fundið fyrir álaginu sem fylgi leikferlinum. 

Leikkonan hefur nú sett nýtt fyrirtæki á laggirnar sem hún nefnir The Honest Company en fyrirtækið framleiðir barnavörur.

Þá ætlar Jessica Alba að einbeita sér að fyrirtækjarekstrinum og fjölskyldulífinu á komandi árum.

Jessica Alba er gift Cash Warren en hún segir að sér sé sama þó að fólk haldi að hún sé eins í raunveruleikanum og hún er á skjánum en hún skiptir sér ekki mikið af því hvað fólk heldur um hana.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes