Katie Holmes telur hjónaband hennar og fyrrverandi eigimanns hennar, Tom Cruise, hafi ekki skaðað feril hennar, að því er tímaritið DuJour greinir frá.
Kvikmyndaferill Katie Holmes fór niður á við eftir að hún fæddi dóttur þeirra Tom Cruise, Suri Cruise, árið 2006 en nú er hún komin aftur á skrið og hefur aldrei haft meira að gera en nú.
Katie Holmes er 35 ára en hún skildi við Tom Cruise, sem er 52 ára, fyrir tveimur árum.
Leikkonan talar um hjónabandið, móðurhlutverkið og leikferill sinn í tímaritinu DuJour en hún prýðir haustútgáfu tímaritsins.
Í viðtalinu segir hún meðal annars að hjónaband þeirra Tom Cruise hafi ekki verið ástæða þess að hún fékk færri leikhlutverk og segir ástæðuna frekar hafa verið að stundum bjóðist mikið af tækifærum og stundum minni.