Daniel Radcliffe segist aðeins vilja vera í ástarsambandi með frægum konum, að því er dagblaðið The Mirror greinir frá.
Harry Potter leikarinn er nú í sambandi með mótleikkonu sinni úr kvikmyndinni Kill Your Darlings, Erin Darke, en honum þykir mikilvægt að vera með einhverjum sem skilur kröfur kvikmyndaiðnaðarins.
Daniel Radcliffe segir það vera mjög erfitt að útskýra fyrir manneskju sem ekki þekki hvernig það er að vinna í kvikmyndaiðnaðinum að fjarsamband sé stundum nauðsyn og að þess konar sambönd geti stundum ekki verið eins og venjuleg sambönd.
Erin Darke og Daniel Radcliffe kynntust við tökur á kvikmyndinni Kill Your Darlings og segir leikarinn þau tvö strax hafa náð vel saman.