Kim Kardashian West forðaðist Beyoncé Knowles á MTV-tónlistarverðlaunarhátíðinni sem fram fór í Los Angeles á sunnudaginn, að því er vefsíða Radar Online greinir frá.
Raunveruleikastjarnan er sögð hafa forðast söngkonuna vegna þess að hún hefur ekki enn fyrirgefið henni að hafa ekki mætt í brúðkaup þeirra Kanye West í maí.
Heimildarmaður sagði í viðtali við Radar Online að Kardashian kenndi Knowles um að hún og eiginmaður hennar, Jay Z, skyldu ekki mæta í brúðkaupið.
Sami heimildarmaður segir West líta á Jay Z sem einn af fjölskyldunni og hafi þeim hjónum þess vegna þótt mjög eigingjarnt af Beyoncé og Jay Z að mæta ekki í brúðkaupið.
Talið er að Knowles og Jay Z hafi frekar viljað fara til Hamptons í New York en að mæta í brúðkaup Jay Z og Kardashian sem átti sér stað í Flórens á Ítalíu í maí.
Einnig er talið að Jay Z hafi ekki verið hlynntur því að West giftist Kardashian vegna þess hversu slæmt það væri fyrir viðskiptin.