Leikarastjörnurnar úr Friends þáttunum komu saman í Jimmy Kimmel Live þættinum á miðvikudaginn síðasta, að því er ABC News greinir frá.
Jennifer Aniston, Lisa Kudrow og Courteney Cox komu fram í þættinum ásamt Jimmy Kimmel sjálfum og lásu þau saman handrit að Friends þætti þar sem grínistinn gerði meðal annars grín að lífi persónanna í þáttunum og þáttunum sjálfum.
Handritið lásu þau upp saman í settinu af endugerð af íbúð Monicu Gellar, sem leikin var af Courteney Cox, og þóttist Jimmy Kimmel vera Ross á meðan hinar leikkonunar brugðu sér í sín vanalegu hlutverk, eða Jennifer Aniston sem Rachel Green, Courteney Cox sem Monica Geller og Lisa Kudrow sem Phoebe Buffay.
Í þáttinn vantaði aðeins þá Matthew Perry, Matt LeBlanc og David Schwimmer en þeir leika Chandler, Joey og Ross í Friends þáttunum.
Jimmy Kimmel gerði meðal annars grín að þáttunum þar sem hann benti á það að Rachel Green hafi búið í risastórri íbúð í New York þrátt fyrir að vinna á kaffihúsi.