Hljómsveitin Nýdönsk hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið „Nýr maður“ af hljómplötunni Diskó Berlín, sem er níunda breiðskífa hljómsveitarinnar. Myndbandið er frumsýnt á mbl.is og má sjá hér að neðan.
Diskó Berlín var hljóðrituð í Berlín, Hafnarfirði og Reykjavík og inniheldur fjölbreytilega popptónlist. Platan er nú komin út í rafrænu formi á tonlist.is en formlegur útgáfudagur á geisladiski er 13. september.
Nýdönsk leikur á stórtónleikum í Eldborg þann 13. sept og í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri 27. september og með hverjum keyptum miða fylgir kóði til að nálgast lögin.
Hljómsveitin ákvað að brydda upp á þeirri nýjung að gefa aðdáendum sínum fimm lög með aðstoð netsins þegar forsala á árlega tónleika hljómsveitarinnar í Hörpu fór af stað.
Myndbandið er framleitt af Stórveldinu undir styrkri leikstjórn Allans Sigurðssonar.
https://www.facebook.com/nydonsk