Söngkonan Ashlee Simpson gekk að eiga unnusta sinn, Evan Ross, í gær á heimili móður brúðgumans en það er engin önnur er tónlistarkonan Diana Ross.
Sonur Simpson, hinn fimm ára Bronx, fylgdi móður sinni að altarinu. Ashlee er sögð hafa klæðst glæsilegum perlukjól á stóra deginum. Þetta er í annað sinn sem Simpson giftir sig en hún var gift tónlistarmanninum Pete Wents frá árinu 2008 til 2011.
Móðir Ross hefur verið syni sínum til halds og trausts í undirbúningi brúðkaupsins að sögn brúðgumans. „Mamma hefur tekið þátt í öllum undirbúningum.“
Simpson og Ross byrjuðu saman í júlí á seinasta ári og trúlofuðu sig svo í mars á þessu ári.