Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West er sögð hafa neitað að sitja við hliðina á söngkonunni Rita Ora á MTV-verðlaunahátíðinni.
Hin 33 ára West á að hafa beðið stjórnendur hátíðarinnar um að finna fyrir sig nýtt sæti þar sem hún vildi ekki vera nálægt Ora. Ástæðan er sú að Ora og bróðir West, Rob Kardashian, áttu í stormasömu ástarsambandi til ársins 2012.
Heimildarmenn TMZ sögðu West ekki hafa verið dónalega þegar hún bað um að vera færð um sæti, hún vildi einfaldlega ekki tala við Ora. West til mikillar gleði fékk hún nýtt sæti við hliðina á hálfsystrum sínum, Kendall og Kylie Jenner.
Samband Rob Kardashian og Ritu Ora endaði víst eftir að upp komst um framhjáhald hennar.